Hvað heitir fjölmennasta sveitarfélag Íslands á eftir Reykjavík?
Kópavogur
Hvaða dýr hefur þrjú hjörtu og blátt blóð?
Kolkrabbi
Hvaða efnivið þarf til að byggja Nether-gátt? (Nether-portal)
Hrafntinnu (obsidian).
Hvaða reikistjarna er þekkt fyrir rauðan lit sinn vegna járnoxíðs í jarðveginum?
Mars
Mars – Venus – Tunglið – Júpíter
Tunglið, því það er tungl en hin eru reikistjörnur.
Hvað heitir stærsta stöðuvatn Íslands?
Þingvallavatn
Hvaða ávöxtur telst grasafræðilega vera ber, þótt jarðarber geri það ekki?
Banani.
Hvaða veru þarf að sigra til að fá Blaze Rods?
Blaze.
Hvaða vísindamaður uppgötvaði pensilín fyrir tilviljun árið 1928?
Alexander Fleming.
Hvalur – höfrungur – hákarl – selur
Hákarl, því hann er fiskur en hin eru spendýr.
Hver er lengsta á Íslands
Þjórsá
Hvaða fugl getur flogið aftur á bak?
Kólibrífugl
Hvað þarf að sameina við áttavita til að búa til Recovery Compass?
Átta Echo Shards.
Hvaða uppfinning Alexander Graham Bell gerði fólki kleift að tala saman yfir langar vegalengdir?
Síminn
Creeper – Zombie – Skeleton – Ender Dragon
Ender Dragon, því hann er lokabossi en hin eru algeng skrímsli sem geta birst í Overworld.
Hvað heitir stærsta eyjan við strendur Íslands?
Heimaey
Hvaða spendýr getur haldið niðri í sér andanum lengur en höfrungur og sefur oft í allt að 20 klukkustundir á sólarhring?
Letidýr
Hvaða hlutur er notaður til að auka hraðann á flugi með Elytra?
Flugeldar
Hvers vegna heyrist ekkert hljóð úti í geimnum?
Þar er ekkert loft eða annað efni til að flytja hljóðbylgjurnar.
Harry Potter – Hermione Granger – Ron Weasley – Gandalf
Gandalf, því hann er úr Hringadróttinssögu en hin eru úr Harry Potter.
Hvað heitir hæsta fjall Íslands
Hvannadalshnjúkur
Hvaða dýr kúkar teningalaga skít?
Vombati.
Hverju þarf að raða saman til að kalla fram Wither?
Þrjár Wither Skeleton-hauskúpur og fjóra Soul Sand- eða Soul Soil-kubba.
Hvað heitir taflan sem raðar frumefnum eftir sætistölu og eiginleikum þeirra?
Lotukerfið
Ísland – Japan – Madagaskar – Sviss
Sviss, það er eina landið sem ekki er eyja