Ríkisútvarpið byrjaði með sjónvarpsútsendingu árið 1966. Á hvaða dögum var engin útsending þangað til ársins 1987 og hvaða mánuði til 1983?
Fimmtudögum og júní
Hvaða hátíð er haldin fyrsta sunnudaginn í júní?
Sjómannadagurinn
Hver er besti vinur Njáls Þorgeirssonar úr Njálusögu?
Gunnar Hámundarsson
Hvað áttu aldrei að þyggja frá álfum?
Gjafir s.s. gull, silfur, klæði, mat og drykkji
Hvaða íslensku leikarar fengu hlutverk í myndum warner bros "Fantastic Beasts And The Crimes Of Grindelward"?
Ólafur Darri Ólafsson og Ingvar Eggert Sigurðsson
Hvaða ár varð Ísland sjálfstætt?
1944
Í hvaða mánuði er bóndadagurinn haldin samhvæmt gömlu Íslensku mánuðunum?
Þorranum
Hver sagði "nú falla öll vötn til Dýrafjarðar"?
Vésteinn Vésteinsson (Gísla saga)
Tröllkona samþykti að vinna ull konu nokkrar ef hún gæti gískað á nafn hennar, hvað var nafnið?
Gilitrutt
Hvað stendur "Th" í Guðni Th Jóhannesson fyrir?
Thorlacius
Alþingi er elsta enþá starfandi þing í heiminum, en hvaða ár var það stofnað?
930
Hver er reglan um hvernær sumardagurinn fyrsti er haldinn?
Fyrsta fimmtudaginn eftir 18. apríl
Hvað heiti bróðir Egils Skallagrímssonar?
Þórólfur Skallagrímsson
Hvað sagðist dautt barn vinnukonu sem hafði verið boðið til vikivakans ætla að lána henni?
Dulu (Móðir mín í kví, kví)
Hverjar eru 5 gangtegundir Íslenska hestsins?
Fet, brokk, stökk, tölt og skeið
Árið 2010 var fyrsti opinberlegi samkynhneigði forsetisráðherra í heimi kosinn á Íslandi hvað heitir hún?
Jóhanna Sigurðardóttir
Á hvaða degi er Jónsmessa haldin?
24. júní
Guðrún Ósvífrsdóttir var í Ástarþríhyrningi með fósturbræðrunum...
Kjartani Ólafssyni og Bolla Þorleyksyni
Hvaða galdra skóla fór Sæmundur fróði í þar sem voru engir gluggar allt var dimmt nema rauða letrið inn í bókunum?
Svartiskóli
Hvað eru nöfn fyrstu 6 forseta Íslands?
Sveinn Björnsson, Ásgeir Ásgeirsson, Kristján Eldjárn, Vigdís Finnbogadóttir, Ólafur Ragnar Grímsson og Guðni Th. Jóhannesson
Þann 8. júní 1783 gaus eldgos sem drap um 25% af allri þjóðinni, hvað hét það eldfjall?
Lakagígar? (Laki)
Á hvaða degi er Gunnarsdagur haldin?
23 apríl
Í hvaða kafla í Grettissögu var Grettir sjálfur kynntur fyrst?
14 kafla
Hvað segir Búkolla þegar skessurnar eru við það að ná henni og karlsyni?
"Taktu hár úr hala mínum og leggðu það á jörðina. Legg ég á og mæli ég um að þú verðir að svo stórri ___ að ekki komist yfir nema fuglinn fljúgandi."
Hvaða kona er talin vera fyrsta kvennskáld Íslands?
Steinunn Refsdóttir