Hryllingur
Það sem allir þurfa að vita
Disney - old school
Mannát
Útlagar og utangarðsmenn
100
Hvaða álegg aðgreinir Hawaí pitsur frá öllum öðrum pitsum?
Ananas. Havaí pitsan er reyndar kanadísk og var fyrst borin fram á sjöunda áratug 20. aldar
100
Hvaða mannapategund dregur nafn sitt af forngrísku orðunum "ættbálkur loðinna kvenna"?
Górillur
100
Hvað er Mikki Mús með marga fingur á hvorri hendi?
Fjóra
100
Hvað kallast brauðið sem borðað er í staðinn fyrir líkama Krists í altarisgöngunni?
Obláta
100
Hvers konar fugl var litli ljóti andarunginn í raun og veru?
Svanur 
200
Hvað heitir lagið sem keppir fyrir hönd Íslands í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva (Eurovision) í ár?
Our Choice eða Heim á íslensku
200
Hvaða líkamshluti vex minnst af öllum líkamshlutum okkar frá því að við erum kornabörn fram á fullorðinsár?
Augun. Augu í kornabörnum eru um 66% af stærð augna þeirra á fullorðinsárum
200
Hvaða fræga teiknimynd frá 1942 var gerð eftir sögu austurrísks gyðings um lífsbaráttu karlkyns rádýrs frá barnæsku til fullorðinsára? 
Bambi
200
Hvaða kvikmynd frá árinu 2015 byggir á raunverulegum atburðum þegar skipreika sjómenn átu lík dána félaga sína eftir að búrhvalur sökkti hvalveiðiskipinu Essex á Kyrrahafi árið 1820?
In the heart of the sea
200
Hvað heitir sjóræninginn sem leikinn er af Johnny Depp í myndaseríunni Pirates of the Caribbean
Jack Sparrow
300
Hvaða óvættu herjaði á unglingsbjálfa sem bjuggu við Álmstræti um miðjan 9 unda ártatug síðustu aldar?
Freddy Krueger
300
Hvað er eina spendýrið sem getur ekki stokkið?
Fíll
300

Við hvaða óvini berst Andrés Önd í frumskógi á Kyrrahafseyju í myndinni Commondo Duck frá árinu 1944?

Japani
300
Hvað heitir frumbygginn sem Róbínsón Crusoe bjargaði frá mannætum í samnefndri skáldsögu frá 1719? 
Frjádagur (Friday)
300

Hvað hét kólumbíski eiturlyfjakóngurinn og kókaínsmyglarinn sem var skotinn til bana af lögreglunni 2. desember 1993?

Pablo Escobar
400
Í hvaða mynd var hinn dagfarsprúði mömmudrengur og raðmorðingi Norman Bates aðalsenuþjófurinn?
Psycho
400
Hvert er helsta bragðefnið í grænum hlunki frostpinnanum frá Kjörís?
Pistasíur
400
Hvað heitir Jóakim Aðalönd á frummálinu?
Scrooge McDuck
400
Hvaða líkamshluta hafa nýorðnar mæður verið hvattar (samt ekki af læknum) til að borða til að stöðva blæðingar, koma í veg fyrir fæðingarþunglyndi og fá oxytocin (mjaltvökva) til að slaka á vöðvum og hjálpa til með brjóstagjöf?
Fylgjuna (placentophagy)
400
Hvers konar skepna var Surtla sem var skotinn 31. ágúst 1952 eftir að hafa verið hundelt í um það bil ár og fé hafði verið lagt til höfuðs henni?
Kind
500
Við hvers konar kvikyndi eru þeir einstaklingar sem þjást af arachnofóbíu dauðhræddir?
Köngulær eða réttara sagt áttfætlinga eins og til dæmis sporðdreka
500
Úr hverju er stærsti hluti af rykinu sem verður til inni á heimilum okkar?
Úr dauðum húðfrumum af okkur og gæludýrum okkar
500
Hvaða persóna hét Dippy Dawg þegar hún birtist í fyrsta skipti árið 1932?
Guffi (Goofy)
500
Kuru er banvænn sjúkdómur sem aðeins hrjáir ákveðna ættbálka mannæta á Papúa Nýju-Gíneu og er rakinn til þess að þeir borða ákveðið líffæri úr mönnum. Hvaða líffæri er það?
Heilinn
500
Eftir hvern er styttan Útlagar eða Útilegumaðurinn sem stendur við Hringbraut hjá Hólavallarkirkjugarði í Reykjavík?
Einar Jónsson